Sérþróuð til að bæta raka húðarinnar
MariCell er íslensk húðvörulína sem er framleidd á Ísafirði. Vörurnar eru þróaðar til að auka heilbrigði húðarinnar, fyrirbyggja sár og styrkja húðina með sjálfbærri notkun náttúrulegra hráefna.
MariCell er þróað af Baldri Tuma Baldurssyni húðsjúkdómalækni og er fylgt eftir af okkar eigin vísinda- og þróunarteymi á Íslandi sem sér um að viðhalda vörulínunni og þeim grunni sem vörurnar eru byggðar á.