MariCell™ Psoria

ró og næring fyrir hreistraða húð

Fyrir mjög þykka, hreistraða húð og einkenni psoriasis. Urea og glycolic acid vinna saman til að mýkja hreistur. mOmega3™ fitusýran hefur bólgueyðandi áhrif sem róa húðina og hjálpa til við að minnka kláða. Formúlan er án ilmefna og hentar daglegri eða annarsdags notkun.

Psoriasis

Psoriasis er langvinnur bólgusjúkdómur í húð sem getur brotist fram aftur hvenær sem er ævinnar. Eitt aðaleinkenni sjúkdómsins er hröð frumuskipting í húðútbrotunum. Mismunandi er hve oft fólk fær útbrot. Sumir fá meira og minna stöðug einkenni á meðan aðrir fá e.t.v. einkenni á margra ára fresti.

  • Karbamíð og ávaxtasýra (AHA) vinna saman til að mýkja hreistur og örva endurnýjun.
  • Paraffínolía og eucerin mynda rakahelda filmu sem heldur húðinni mjúkri.
  • mOmega3™ fitusýrur styðja við húðina og dregur úr bólgu.
  • Náttúruleg andoxunarefni verja húðina gegn sindurefnum.

Í Psoria er mOmega3™ notað til að vinna gegn kláða og hreistursmyndun. Fitursýrurnar endurskapa og mýkja hyrnisfrumulagið og hjálpa til við að draga úr roða og kláða. Þannig er húðin betur í stakk búin til að verjast þurrki og ertingu.

Berið kremið kvölds og morgna aðeins á viðkvæma, þykka eða hreistraða húð. Nuddið varlega þar til það er komið inn í húðina. Kremið er rakagefandi og sefandi og hentar til daglegrar notkunar.

  • Inniheldur ávaxtasýru sem getur ert viðkvæma húð.
  • Ekki nota á auma, sýkta eða rofna húð.
  • Varist að kremið berist í augu; þvoið hendur eftir notkun.
  • Notið ekki ef ofnæmi er fyrir einhverju innihaldsefna.
  • Hættið notkun ef húð roðnar eða ef kláði eða óþægindi aukast.
  • Kremið getur tímabundið aukið viðkvæmni húðar fyrir sólargeislum; hugið að sólarvörn.
  • Aðeins fyrir útvortis notkun.

Virkar og hreinar húðvörur

þróaðar af íslenskum húðlækni fyrir heilbrigðari húð.

Myndirnar hér að ofan sýna árangurinn af notkun MariCell Psoria í 31 dag gegn slæmum einkennum Psoriasis á höndum. Viðkomandi hafði verið í öflugri lyfjameðferð og legið á sjúkrahúsi vegna sýkinga. Breytingin varð eftir MariCell Psoria var borið á tvisvar sinnum á dag.

Fyrir
Eftir

Reynslusögur

Einar Örn Grétarsson hefur lengi glímt við Psoriasis. Þegar hann fór í nám til Svíðþjóðar urðu einkennin óbærileg vegna kulda og álags. Eftir að hafa borið MariCell Psoria á sig í tvo daga var hann orðinn eins og nýr.
Einar Örn Grétarsson

Aðrar MariCell vörur

Hafa samband

Hefurðu einhverjar spurningar? Sendu okkur línu.