- Karbamíð og AHA-sýrur mýkja stífa húð og stuðla að flögunarferli.
- Paraffínolía og eucerin loka raka inni og halda húðinni seigri.
- mOmega3™ endurheimtir mýkt og styður heilbrigt hyrnisfrumulag.
- Náttúruleg andoxunarefni verja húðina gegn sindurefnum.
Gerir húðina jafnari og mýkri. MariCell Smooth hentar við ýmsum húðkvillum eins og;
– húðhnökrum/húðhnöbbum á handleggjum (e. keratosis pilaris)
– inngrónum hárum eða rakstursbólum
– hormónabólum
Kremið skal nota 2-3 sinnum í viku eða eftir þörfum, bæði sem hluti af meðferð eða sem forvörn.
MariCell SMOOTH kremið er virkasta kremið í húðvörulínunni og hentar einnig til notkunar gegn almennum húðþurrki á t.d. olnboga, handarbökum og þurrkublettum. Þá er það sérstaklega virkt í þeim kulda og þurrki sem gengur yfir vetrarmánuðina.
Húðnabbar, þar er hárknökrar og rakstursbólur, geta myndast af ýmsum ástæðum. Hárknörkar (keretosis pillaris) myndast þegar hársekkir stíflast og rakstursbólur myndast þegar hár vex undir húð. Efsta lag húðarinnar er m.a. búið til úr próteini sem kallast keratín. Ef þetta lag er of þykkt/þurrt getur það hindrað vöxt agnarsmárra líkamshára upp úr hársekkjum. Afleiðingin er að lítil bunga eða hárhnökri, sem inniheldur hár og dauða húð, myndast á húðinni. Algengt er að hárhnökrar myndist á upphandleggjum, lærum og lendum. Hárhnökrar eru oftast hvítir eða rauðir að lit og valda yfirleitt hvorki sársauka né kláða. MariCell SMOOTH slakar á húðinni þannig að auðveldara verður fyrir líkamshár að vaxa upp úr hársekkjunum. Efnið mýkir einnig hárhnökra, þannig að auðveldara verður að nudda þá af eftir sturtu eða heit böð.
Þegar hyrnisfrumulagið skemmist getur húðin orðið stíf og ójöfn. mOmega3™ fitusýrurnar vinna djúpt til að endurbyggja hyrnisfrumulagið og mýkja húðina þannig að hún verði sléttari og minna líkleg til að mynda húðnabba. SMOOTH kremið inniheldur ávaxtasýrur og örlíitð magn af fitusýrnum sem mýkir efsta lag húðarinnar þannig að hár vaxa auðveldar í gegnum hana og bólur myndast síður.
Berið þunnt lag af Smooth kvölds og morgna á stífa og ójafna húð. Hentar á handleggi, fætur eða aðra staði þar sem húðhnabbar og inngróin hár eru algeng. Forðist að bera á nýrakaða húð, í húðfellingar eða á andlit nema samkvæmt leiðbeiningum frá lækni.
Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Nam convallis mattis neque at faucibus. Sed vitae felis dictum lectus fringilla blandit. Mauris sed hendrerit nibh.
Aliquam tristique nisl pretium nulla consequat lacinia. Phasellus faucibus eros vel fermentum vestibulum. Nulla facilisi. Curabitur sollicitudin felis nunc, consectetur pharetra tortor blandit vel.