Algengar spurningar

Já, allar MariCell vörur eru án ilmefna og litarefna til að lágmarka ertingu. Footguard inniheldur mentól sem gefur aðeins ferskan ilm og kælir.

Nei, engin af okkar vörum er prófuð á dýrum.

Vörurnar eru þróaðar fyrir fullorðna húð. Húð barna er oft viðkvæmari, mælt er með að prófa á litlu svæði fyrst og ræða við lækni ef óvissa er. XMA húðvaran er mildasta kremið og inniheldur enga ávaxtasýru, líkt og er í hinum vörunum, sem getur valdið roða.

Nei, við notum ekki paraben og forðumst sterk rotvarnarefni. Við notum mildar rotvarnir sem hafa verið metnar öruggar.

Vörurnar innihalda náttúrulegar mOmega3 fitusýrur. Ef þú ert með þekkt fiskofnæmi er mælt með að prófa á litlu svæði fyrst og ráðfæra sig við lækni fyrir notkun.

Nota skal kremið innan 4 vikna frá opnun. Geymið á þurrum stað við stofuhita og frá beinu sólarljósi.

Hafa samband

Hefurðu einhverjar spurningar? Sendu okkur línu.