MariCell™ Footguard

næring fyrir fæturna

MariCell Footguard er sérhannað fótakrem sem mýkir sigg, hjálpar sprungnum hælum og endurnýjar þykka húð á iljum. Formúlan byggir á samstarfi vísinda og náttúru: lífvirk prótein, omega‑3 fitusýrur úr fiski og ávaxtasýrur vinna saman til að jafna húðina og veita henni styrk og mýkt.

Virkni Footguard er þríþætt, þar sem mOmega3 fitusýrurnar viðhalda heilbrigði ysta lags húðarinnar, karbamíð gefur húðinni raka og eykur vatnsbindigetu og ávaxtasýran mýkir og fjarlægir efsta lag húðarinnar. Með þessari þríþættu virkni getur Footguard meðhöndlað og komið í veg fyrir sigg, þykka húð og sprungna hæla.

Hvað er sigg?

Sigg er húð sem orðið hefur þykk og hörð vegna núnings, þrýstings eða ertingar. Nánar tiltekið er hér um að ræða þykknun á hyrnislagi yfirhúðarinnar. Það myndast til að vernda vefi sem liggja dýpra í húðinni. Sigg er ekki hættulegt en getur stundum leitt til sýkinga eða sára. Baldur Tumi húðsjúkdómalæknir þróaði fyrst MariCell Footguard kremið fyrir fólk með sykursýki í huga, en fótaþurrkur er þekkt vandamál sem fylgir þessum hópi sjúklinga.

  • Karbamíð (urea) mýkir harða húð og eykur raka.
  • Ávaxtasýrur (AHA) örva náttúrulega húðflögnun og endurnýjun.
  • Paraffínolía og eucerin skapa mjúka filmu sem lokar raka inni.
  • Mentól veitir milda kælingu og ferskleikatilfinningu.
  • mOmega3™ – nærandi fitusýrur unnar úr fiski styðja við húðvarnarhjúpinn á náttúrulegan máta.

Skemmt hyrnisfrumulag í húð getur valdið siggmyndun. mOmega3™ samanstendur af fitusýrum úr íslenskum fiski sem með sérþróaðri aðferð endurheimta og mýkja hyrnisfrumulagið. Þessar fitusýrur vinna djúpt í húðinni til að draga úr uppsöfnun dauðra frumna og styðja náttúrulegt jafnvægi húðarinnar.

Berið MariCell Footguard á hreina, þurra fætur kvölds og morgna. Nuddið varlega inn í þykk svæði, sigg eða sprungna hæla þar til kremið hefur smogið inn. Forðist að bera kremið á milli táa.

  • Kremið inniheldur ávaxtasýru sem getur ert viðkvæma húð.
  • Notið ekki á auma, sýkta eða rofna húð.
  • Varist að kremið berist í augu og þvoið hendur eftir notkun.
  • Ekki nota ef ofnæmi er fyrir einhverju innihaldsefna.
  • Hættið notkun ef húð roðnar eða ef kláði eða óþægindi koma fram.
  • Footguard getur aukið viðkvæmni húðar fyrir sólargeislum; notið sólarvörn á útsetta húð.

Íslenskar hreinar húðvörur

þróaðar til að auka heilbrigði húðarinnar

Myndin sýnir árangur eftir 17 daga notkun á MariCell Footguard. 58 ára heilbrigð kona sem stundar langar gönguferðir og hefur átt í verulegum vandræðum með sprungna og harða húð á fótum.

Fyrir
Eftir
Fyrir
Eftir

Myndin sýnir árangur eftir 19 daga notkun á MariCell Footguard. 65 ára kona með Psoriasis á iljum og hefur glímt við þurra húð, sigg, kláða og óþægindi sem erfitt getur verið að meðhöndla.

Reynslusögur

Heiðdís Huld Segatta æfir CrossFit 1-2 á dag. Hún notar MariCell Footguard til að mýkja siggið í lófunum þannig að það rifni ekki. "Það er gott að hafa siggið, en ég vil hafa það mjúkt og MariCell Footguard hefur algjörlega bjargað mér hvað það varðar"
Heiðís Huld Segatta
Ása Hrund Sigurjónsdóttir hjúkrunarfræðingur vinnur vaktavinnu og álagið á fætur er mikið á löngum vöktum. Hún var með grófa og erfiða húði í 15 ár. „Húðin fór versnandi, varð þykk og gróf. Ása Hrund hafði árangurslítið prófaði alls konar krem, fótaböð, fótsnyrtingu og fleira þangað til hún uppgötvaði MariCell Footguard. Í meðfylgjandi frétt er bæði viðtal við Ásu Hrund og Heiðdísi Huld sem hafa notað MariCell Footguard með ólíkum en árangursríkum hætti.
Ása Hrund Sigurjónsdóttir

Aðrar MariCell vörur

Hafa samband

Hefurðu einhverjar spurningar? Sendu okkur línu.